Playing via Spotify Playing via YouTube
Skip to YouTube video

Loading player…

Scrobble from Spotify?

Connect your Spotify account to your Last.fm account and scrobble everything you listen to, from any Spotify app on any device or platform.

Connect to Spotify

Dismiss

Lyrics

Nú vofir yfir mesti hryllingur
líkt og svört stormský við sjónarrönd
óhugnanlega svífandi nær og nær
á miskunnarlausum himninum.

Hlaupið bara eins og fætur toga!
Það er vonlaust að reyna að flýja, það er orðið um seinan...

Lyrics continue below...

Don't want to see ads? Upgrade Now

Við kynnum nú nýja hugmynd
um hrylling og taumlausan ótta
svo íþyngjandi og óumflýjanlega
sem mara á hrærðu hjarta.

Þið hafið enga hugmynd um þá skelfingu
sem Helvíti raunverulega er!

Með eld í hjarta og heift í huga
vér mótmælum og eitrum og skaða mestan veitum.
Hersing vor knáa fjölskrúðug og framsækin
ryður þessa braut og rústir eftir skilur.

Engin fórn er of mikil
í okkar blóðskotnu augum
því okkar er valdið
og ykkar er fallið.

Valdi okkar beitum
án þess að blikka auga.
Vor fjölda-aftaka mikla
skal gjörast fyrir allra manna augum.

Hreytum og hrækjum!
og svívirðum falska kónga!
Brennum og brjótum
öll stórveldi í okkar vegi!

Við höfnum og verjumst!
og berjumst af offorsi!
Herjum á hetjur
og allt sem þær standa fyrir!

Hreytum og hrækjum!
og svívirðum slæga aumingja!
Brennum og brjótum
öll stórveldi í okkar vegi!

Við höfnum og verjumst!
og berjumst með ofbeldi!
Herjum á væsklana
og allt sem þeir standa fyrir!

Steytum krepptum hnefum, sperrtir og hertir
kjálkar læstir, tilbúnir í stríð.

Við herjumst af æði
og öskrum svo hástöfum
að raddir bresta
og skerast í fjarska.

Slítum hálsa óvinanna
og hæðumst að þeim til sólarrásar.
Engin miskunn, aldrei aftur
fyrir þá sem hyggjast svíkja og kúga.

Writer(s): Dagur Gislason

Don't want to see ads? Upgrade Now

API Calls